Jæja, ég er komin heim!:) Eftir 13klst akstur... Á ég að segja ykkur sólarsöguna? Sko við lögðum af stað frá rvk kl 17:45 og það var HÁLKA alla leiðina frá rvk og til hafnar! Við vorum frá 17:45 og til 00:00 á höfn. Þegar þar var komið þá lögðum ég og Bergrós í okkar ótroðnu ferð... Bókstaflega ótroðnu ferð! Við hringdum í 1777 og hann sagði okkur að það væri smá vetrarhálka frá dpv og til nesk. Okei, við lögðum í hann... á 30km/hr... Alla leið til dpv og þar byrjaði að snjóa svo heiftarlega að ég sá ekki að næstu stigu fyrr en ég var komin framhjá stigunum. Okei við vorum 1klst og 30mín til dpv... og eftir það þá versnaði þetta bara allt... Við vissum ekkert hvar við vorum niðurkomnar því það snjóaði svo mikið að maður sá ekkert út.... Jæja svo vorum við að nálgast breiðdalsvík og þá fórum við ennþá hægar af því þar var komin metres snjór og þótt bíllinn minn sé hár þá er hann ömurlegur í slappi. Við vorum að fara upp brekku einhvers staðar hjá breiðdalsvík þá ákváðum við að láta koma á móti okkur af því ég mátti ekki gefa neitt í þá spólaði bara kagginn! Við hringdum í Guðbjart og hann ræsti einn vinnumanninn og lögðu af stað móti okkur... En þeir lentu nú líka í vondu veðri upp á oddskarði því þar var komin snjór sem náði tvöfalt hærri en bíllinn minn svo við þurftum að skila bílinn minn eftir á rfj með öllu dótinu mínu og öllum jólagjöfum og líka öllum jólagjöfunum hennar Bergrós... En alla vega var ég komin upp í rúm kl 7:30... og vaknaði síðan kl 10:30 því litli frændi minn vildi koma að horfa á spiderman en það er það sem ég er búin að vera gera í dag... Horfa á báðar spiderman- myndirnar og síðan horfa 2svar sinnum á jóladisk með öllum jólasveinunum og 13 sömu lögunum 2svar... en alla vega veit ég ekki hvað ég ætla að gera í kvöld... Urgla bara vera heima og slappa af... Ég vona að þetta blogg lætur ykkur fyrirgefa mér fyrir að hafa ekkert bloggað síðan í kringum sept eða svo...
Sjáumst;)

Hlakka til að sjá þig fyrir austan.
kveðja Heiðdís